ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Kallaði Tiger þeldökkt fífl

Steve Williams sleppur með skrekkinn
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:35 › 7. nóvember 2011
Steve Williams og Tiger eru ekki vinir í dag.

Steve Williams og Tiger eru ekki vinir í dag. Mynd Reuters

Steve Williams, fyrrverandi kylfusveinn Tigers Woods til margra ára, fór aðeins fram úr sjálfum sér á verðlaunahátíð atvinnukylfusveina sem fram fór í Sjanghæ fyrir helgi. Þar kallaði Williams sinn fyrrverandi atvinnuveitanda „þeldökkt fífl“ en hann hefur beðist afsökunar á því og sleppur með skrekkinn.

Þessar hátíðir kylfusveina eru vanalega mikil grínkvöld þar sem menn skjóta hver á annan. Ein verðlaunin kallast „fögnuður ársins“ og vissu allir að Williams hlyti þau sem og hann gerði. Var það létt skot á Williams fyrir að hafa farið í sjónvarpsviðtal eftir sigur Adams Scott á Bridgestone-mótinu í sumar en þá sagði Williams:

„Þetta er minn besti sigur á ferlinum.“ Williams var þá orðinn kylfusveinn Scotts en ummælin vöktu eðlilega mikla furðu þar sem hann stóð við hlið Tigers er hann vann þrettán risamót.

Þegar kynnir kvöldsins bað hann um að útskýra hvað gerðist þarna glotti Williams út í annað, beygði sig að hljóðnemanum og sagði: „Það var markmið mitt að troða þessu ofan í þetta þeldökka fífl.“ Þó svo að mörg skotin fengju að fljúga þetta kvöld var ekkert jafngróft og þetta hjá Williams en það mátti heyra saumnál detta í salnum eftir að hann mælti þessi orð.

Williams bað Tiger og aðra sem hann gæti hafa sært afsökunar daginn eftir og sleppur hann með skrekkinn. PGA ætlar ekki að refsa Williams en í yfirlýsingu frá sambandinu segir: „Ummæli Williams voru afar óviðeigandi en við vitum að hann hefur beðist afsökunar og við treystum því að slík framkoma muni ekki endurtaka sig.“

Þá ætlar nýi atvinnuveitandi Williams, Ástralinn Adam Scott, ekki að reka kylfusveininn fyrir ummælin. „Ég held að allir í salnum hafi bara verið léttir á því. Orð hans hafa eflaust verið tekin úr samhengi,“ segir Adam Scott.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?