ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Guðjón Þórðarson ráðinn þjálfari Grindavíkur

Semur til þriggja ára
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:18 › 7. nóvember 2011
Guðjón er kominn til Grindavíkur.

Guðjón er kominn til Grindavíkur. Mynd DV

Guðjón Þórðarson skrifaði í gærkvöldi undir þriggja ára samning við Pepsi-deildarlið Grindavíkur og mun stýra því næstu þrjú árin. Hann tekur við starfinu af Ólafi Erni Bjarnasyni sem hefur verið spilandi þjálfari liðsins í rúmt ár.

Guðjón stýrði liði BÍ/Bolungarvíkur í 1. deildinni í sumar og endaði liðið í sjötta sæti undir hans stjórn. Hann var síðann látinn taka pokann sinn eftir að tímabilinu lauk.

Ráðning Guðjóns hefur valdið nokkrum usla innan knattspyrnudeildar Grindavíkur en Þorsteinn Gunnarsson sagði af sér sem formaður hennar þar sem hann var alfarið á móti ráðningu Guðjóns.

Grindavík endaði í tíundi sæti Pepsi-deildarinnar í sumar og bjargaði sér frá falli í lokaumferð með sigri á ÍBV, 2-0.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?