Íslandsmeistaramótið í Brasilísku Jiu Jitsu fór fram í dag fjórða árið í röð en keppendur í ár voru rúmlega fimmtíu talsins frá sex félögum. Margar skemmtilegar og spennandi glímur sáust á mótinu en svo fór að Sighvatur Magnús Helgason í Mjölni og Anna Soffía Víkingsdóttir í Ármanni stóðu uppi sem sigurvegarar í opnum flokkum karla og kvenna.
Bardagaklúbburinn Mjölnir var sigursælastur á mótinu eins og oft áður og meðal annars röðuðu Mjölnismenn sér í þrjú efstu sætin í opnum flokki karla. Vinsældir íþróttarinnar fara stöðugt vaxandi hér á landi og miðað við taktanna sem sáust í Íslandsmeistaramótinu í dag er ljóst að gnægð er góðra keppenda sem vafalítið eiga eftir að gera góða hluti bæði hér heima og erlendis á næstu árum.
Þess má geta að Íslandsmeistarar síðustu ára í opnum flokkum karla og kvenna, þau Gunnar Nelson og Auður Olga Skúladóttir voru hvorug með að þessu sinni þar sem þau dveljast bæði erlendis við æfingar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
