ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Á sjötta tug keppa í Jiu Jitsu

Íslandsmeistaramótið í Brasilísku Jiu Jitsu hefst á morgun
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:40 › 5. nóvember 2011
Keppt verður í Laugardalnum

Keppt verður í Laugardalnum

Íslandsmeistaramótið í Brasilísku Jiu Jitsu (BJJ) verður haldið á morgun sunnudaginn 6. nóvember. Á sjötta tug keppenda eru skráðir til leiks í ár frá 6 félögum en keppt verður í sjö þyngdarflokkum karla og tveimur þyngdarflokkur kvenna. Auk þess verður keppt í opnum flokki karla og kvenna.

Mótið verður haldið í sal Ármenninga í Laugardalnum þar sem það hefur verið undanfarin ár. Það er salurinn Skellur sem er á neðstu hæð Laugarbóls við hliðina á gervigrasvellinum. Fyrstu glímur hefjast kl. 11:30. Mótið er haldið á vegum BJJ Sambands Íslands (BJÍ). Þetta er fjórða árið í röð sem BJÍ stendur fyrir Íslandsmeistaramóti í Brasilísku Jiu Jitsu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?