ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Hægt að veðja á íslenska æfingaleiki

Útlendingar sækja í spillingarlausan boltann hér heima
12:50 › 30. nóvember 2011
Sóst er eftir því að halda allri spillingu út úr íslenska boltanum.

Sóst er eftir því að halda allri spillingu út úr íslenska boltanum. Myndir Tomasz Kolodziejski/Sigtryggur Ari Jóhannsson

  • Magnús Sigurbjörnsson

    Magnús Sigurbjörnsson Myndir Tomasz Kolodziejski/Sigtryggur Ari Jóhannsson

Veðmálum á íslenska fótboltaleiki hefur fjölgað til muna hjá erlendum veðmálasíðum. Ekki er einungis hægt að veðja á deildarleikina á sumrin heldur einnig undirbúningsmótin og æfingaleiki. Til dæmis bauð veðmálarisinn William Hill fólki að leggja undir á æfingaleik 1. deildar liðs Þróttar og Pepsi-deildar liðs Fylkis sem fram fór í gærkvöldi.

Auðvelt getur verið fyrir innanbúðarmenn að sækja sér pening með því að veðja á æfingaleiki því oft leyfa þjálfarar yngri leikmönnum að spreyta sig á vetrarmánuðum og geta veðmálafyrirtækin úti ekki alltaf vitað hvort íslenskir þjálfarar ætli sér að nota sína helstu menn eða leyfa óreyndari mönnum að sýna hvað í þeim býr. Aukinn áhugi útlendinga á að veðja á íslenska leiki stafar að stórum hluta af því hversu óspilltur boltinn er hér heima.

Nær hámarki á sumrin
Magnús Sigurbjörnsson er framkvæmdastjóri Running Ball fyrir Ísland, Noreg og Færeyjar. Running Ball sendir mann á leiki sem lýsir honum tölfræðilega. Lýsingin er mjög ítarleg og greinir frá hverju einasta innkasti. Þessar upplýsingar nota svo veðmálasíðurnar erlendis. „Þær fá upplýsingarnar alveg um leið og okkar maður ýtir á hverja skipun,“ segir Magnús.

Hann segir að það séu tvö ár síðan veðmál á æfingaleiki hér heima fóru virkilega að aukast og vissi hann af nokkrum stóru evrópskum síðum sem buðu stuðla á leik Fylkis og Þróttar í gærkvöldi.

„Þetta er furðulega mikið notað og sérstaklega mikið veðjað á Íslandi. Yfir sumartímann nær þetta svo hámarki en þá er hægt að veðja á nær allar deildir. Efstu þrjár deildir karla, efstu deild kvenna og annan flokk karla. Svo er Lengjubikarinn og Reykjavíkurmótið inni í þessu líka. Reykjavíkurmótið hefur verið mjög vinsælt síðan árið 2007,“ segir Magnús.

Vita að hér er spilað til sigurs
Magnús byrjaði sjálfur að fara á völlinn fyrir Running Ball árið 2007 en þegar yfirmaður Skandinavíuhluta fyrirtækisins hætti tók hann við. Hann sér í dag eins og áður segir um Ísland, Noreg og Færeyjar. Hann viðurkennir að lið geti hæglega misnotað veðmálin á æfingaleikina og hagrætt úrslitum.

„Það er ekkert sem kemur í veg fyrir það, nei. Það er svo miklir peningar í þessu að enginn myndi taka eftir nokkrum hundraðþúsundköllum,“ segir Magnús en bendir á að liðin þyrftu auðvitað að hafa það sjálf á samviskunni.

Þrátt fyrir geysimikla aukningu í veðmálum á íslenska boltann hefur ekki enn komið upp mál eins og víða í Evrópu þar sem úrslitum leikja er hagrætt.

„Ég held að það sé að trekkja menn að. Við viljum halda allri spillingu út úr boltanum. Við viljum bara almennilega fótboltaleiki og ekkert bull. Hér á landi er ekkert verið að hagræða leikjum eins og tíðkast hefur til dæmis í Austur-Evrópu. Fólk veit að áreiðanleikinn er mikill í íslenska boltanum og þar er spilað til sigurs,“ segir Magnús Sigurbjörnsson.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?