Langhlaupari skólaliðsins í Alaska-háskólanum í Anchorage í Bandaríkjunum missti báða fæturna eftir að hafa hlotið slæmt kal. 28 ára Kenýumaðurinn Marko Cheseto týndist fyrr í mánuðinum í snjóstormi en þá var hann aðeins klæddur gallabuxum, hlaupaskóm og þunnum jakka. Hann fannst fyrir utan hótel tveim dögum seinna en þá var hann haldinn ofkælingu og alvarlegu kali. Hann var fluttur á spítala en í fyrstu gátu sjúkraliðar ekki tekið hann úr skónum þar sem þeir voru frosnir við fætur hans. Vegna alvarleika kalsins þurfti að fjarlægja fæturna.
Cheseto hefur sigrað tvisvar í spretthlaupi í NCAA skólaíþróttakeppnunum.
Lögreglan á háskólasvæðinu segir að maðurinn hafi týnst vegna „persónulegrar krísu“. Talið er að hann hafi verið þunglyndur vegna nýlegs sjálfsmorðs vinar síns, Williams Ritekwiangs. Cheseto og William voru frá sama þorpi í Kenýu en þeir höfðu farið til Alaska til þess að nema við háskólann. Þeir voru saman í spretthlaupaliði skólans.
Cheseto gaf út tilkynningu þar sem hann þakkaði þeim sem leituðu hans og lofaði að gera sitt besta til að gefa aftur til samfélagsins. Yfiríþróttakennari skólans segir að Cheseto muni halda áfram að læra við skólann og að hann geti jafnvel hlaupið aftur einn daginn. Cheseto nemur hjúkrunarfræði við háskólann.
„Það eru til kraftaverkakenndir hlutir nú til dags,“ segir íþróttakennarinn. „Við verðum bara að bíða og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
