ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Massa verður að sanna sig

Gengið illa síðan hann lenti í slysi 2009
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:51 › 24. nóvember 2011
Massa keyrir fyrir lífi sínu.

Massa keyrir fyrir lífi sínu. Mynd: Reuters

Forseti formúluliðs Ferrari, Luca di Montezemolo, segir að Brasilíumaðurinn Felipe Massa þurfi að sanna sig á næsta tímabili ætli hann að fá nýjan samning hjá liðinu. Núverandi samingur Massa rennur út í lok árs 2012. Hinn þrítugi Massa er fimmti í stigakeppni ökumanna, 137 stigum á eftir samherja sínum, Fernando Alonso. Þá hefur Massa ekki komist einu sinni á pall í ár á meðan Alonso hefur komist tíu sinnum á pall.

„Við erum með samning við Fernando til 2016 og hann er besti ökumaður í heimi. Samningur Massa rennur út eftir næsta tímabil. Hann er nú þegar búinn að vera hjá okkur í okkur ár. Þrátt fyrir að hann hafi ekki átt gott tímabil og verið frekar óheppinn getum við ekki efast um hæfileika Massa því hann er alltaf samkeppnishæfur og keyrir alltaf hratt,“ segir Montezemolo við breska blaðið Guardian.

Massa var ævintýralega nálægt heimsmeistaratitlinum árið 2008 þegar hann barðist til síðasta hrings við Lewis Hamilton á heimavelli sínum í Brasilíu. Eftir að hann meiddist illa á höfði um mitt sumar 2009 hefur honum lítið gengið að koma til baka og ekki verið nálægt neinni baráttu um verðlaunasæti í stigakeppninni.

„Við skulum vonast til þess að Massa geti endað tímabilið vel í Brasilíu,“ segir Montezemolo en lokakeppni ársins fer fram á Interlagos-brautinni í Brasilíu á sunnudaginn. „Við reiknum við stórum hlutum frá honum á næsta tímabili og eftir það munum við ákveða framhaldið. Við skulum orða það svo að Massa þurfi að sanna sig á næsta tímabili,“ segir Montezemolo.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?