Sigurður og Hanna eru Norðurevrópumeistarar í suður-amerískum dönsum. Mynd úr safni. Mynd WDSF / YouTube
Norðurevrópumeistaramót í samkvæmisdönsum fór fram hér á landi um helgina. Þetta er í fyrsta skipti sem mótið er haldið hér á landi en mótið er haldið ár hvert í hinum ýmsu löndum Norður-Evrópu. Sigurvegarar í suður-amerísku dönsum voru íslenska dansparið Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir en í standard dönsum voru það sænska parið Iurii Borivskyi og Kaja Jackowska.
Einnig var keppt í yngri flokkum á mótinu. Í flokki ungmenna voru það íslenska dansparið Freyþór Össurarson og Hrefna Dís Halldórsdóttir sem báru sigur úr bítum í suður-amerískum dönsum en danska parið Mathias Kirkegaard og Line Riding sigruðu í standard dönsum. Í flokki unglinga II voru það hinsvegar Ranno Aigro og Greta Korju frá Eistlandi sem sigruðu í suður-amerískum dönsum en landar þeirra, Madis Abel og Lauren Juhanson, sigruðu í standard dönsum. Í flokki unglinga I var það íslenska parið Pétur Fannar Gunnarsson og Rakel Matthíasdóttir sem höfnuðu í fyrsta sæti í suður-amerískum dönsum en í standard dönsum voru það eistneska parið Werner Robert Laaneots og Laura-Liisa Lohmus.
Samhliða mótinu fór fram alþjóðlega mótið WDSF Icelandic Open. Sigurvegarar í suður-amerískum dönsum þar voru danska parið Martino Zanibellato og Michelle Abildtrup en í standard dönsum Iurii og Kaja. Martino og Michelle sigruðu örugglega á mótinu en þau eru meðal bestu danspara heims í suður-amerískum samkvæmisdönsum. Sigurður Þór og Hanna voru svo örugg í öðru sætinu, efst Íslendinga á þessu opna móti. Rétt eins og á Norðurevrópumeistaramótinu var keppt í yngri flokkum á WDSF Icelandic Open. Tvö íslensk pör sigruðu í sínum flokki á mótinu. Það voru þau Freyþór og Hrefna Dís, sem sigruðu í flokki ungmenna í suður-amerískum dönsum, og Pétur Fannar og Rakel, sem sigruðu í flokki unglinga I í suður-amerískum dönsum.
Dansíþróttasamband Íslands hélt bæði mótin. Mótin fóru bæði fram í Laugardalshöllinni. Norðurevrópumeistaramótið kemur í stað Norðurlandamóts en auk Norðurlandanna taka Eistland, Lettland og Litháen þátt á mótinu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
