ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Vann fyrir mömmu

Loksins sigur hjá Hamilton
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:12 › 14. nóvember 2011
Hamilton með sigurlaunin.

Hamilton með sigurlaunin. Mynd Reuters

„Mamma átti afmæli um helgina þannig það var gaman að vinna fyrst hún var mætt að horfa á mig,“ segir Lewis Hamilton, ökumaður McLaren í Formúlu 1, en Hamilton tókst loks að vinna aftur keppni er hann kom fyrstur í mark í flóðljósunum í Abú Dabí á í gær.

Hamilton hafði ekki unnið keppni frá því í Þýskalandi um mitt sumar og með sigrinum í Abú Dabí komst hann í annað skiptið á verðlaunapall í síðustu átta keppnum. Stigin 25 sem hann fékk fyrir sigurinn hjálpa honum líka mikið í baráttunni um verðlaunasæti í stigamótinu en hann á nú enn smámöguleika á þriðja sætinu en lokakeppnin fer fram í Brasilíu.

Átján stigum munar á honum og Fernando Alonso sem er í þriðja sæti í stigakeppninni en Hamilton verður að ná minnst öðru sæti í Brasilíu og vona að Alonso klári ekki.

Vonandi byrjun á einhverju betra
Sigurinn hjá Hamilton var hans þriðji í ár og sautjándi á ferlinum. „Mér líður frábærlega. Þetta er held ég ein af mínum betri keppnum og að halda aftur af öllum bestu ökuþórum heims var frábært. Það hefur reynst okkur erfitt á þessu tímabili,“ segir Hamilton en Sebastian Vettel, sem hóf keppni á ráspól, eyðilagði dekk á bíl sínum strax á fyrsta hring og þurfti að draga sig úr keppni.

„Liðið gerði vel í viðgerðarhléunum. Ég er bara virkilega ánægður að vera kominn aftur í þetta sæti og það verður sko gaman í kvöld,“ segir Hamilton.

Tímabilið í ár hefur reynst honum mjög erfitt og hefur hann verið meira í sviðsljósinu fyrir fautaskap í brautinni og árekstra en sigra. „Þetta hafa verið erfiðir mánuðir en vonandi er þetta byrjunin á einhverju góðu. Það er ein keppni eftir og ég vonast til að halda þessu skriði áfram en ég verð að vera með hausinn í lagi,“ segir Lewis Hamilton.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?