„Maður hefur náð að halda þessu skriði hérna heima,“ segir badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir sem um helgina vann Iceland International-mótið fimmta skiptið í röð en Ragna hefur ekki tapað leik á heimavelli síðan árið 2005. Eru þá tekin með Íslandsmeistaramót, Iceland International og Evrópukeppni B-landsliða.
Ragna lagði litháísku stelpuna Akvile Stapusaityte í úrslitaleik í þremur settum, 21–18, 17–21 og 21–17. Ragna er númer 65 á heimslistanum en Stapusaityte 105 þannig það hefði orðið saga til næsta bæjar hefði sú litháíska lagt Rögnu að velli. Fyrir sigurinn fær Ragna 2.500 stig á heimslistanum sem hjálpar henni mikið í baráttunni um sæti á Ólympíuleikunum í Lundúnum á næsta ári.
Stressuð í fyrsta sinn
Flestir bjuggust við tiltölulega öruggum sigri Rögnu á Stapusaityte en þær hafa mæst þrívegis áður og Ragna alltaf haft tiltölulega auðveldan sigur. Úrslitaleikurinn fór þó í oddalotu þar sem Stapusaityte leiddi á tímapunkti, 11–9.
„Hún hafði allt að vinna þannig ég vissi að hún myndi mæta dýrvitlaus og myndi svo sannarlega gera sitt besta. Þegar hún var komin 11–9 yfir vann ég samt einhverja átta bolta í röð og komst í 17–11. Þá var þetta komið. Það skiptið náttúrulega máli að toppa á réttum tímapunkti í leiknum,“ segir Ragna sem viðurkennir að hafa stressast svolítið upp í úrslitaleiknum en það er ekki henni líkt.
„Ég veit ekki hvað þetta var. Ég hef ekki tapað leik á þessu móti síðan 2005 og þá tapaði ég fyrir virkilega góðri stelpu. Síðan þá hef ég alltaf unnið. Það var eins og ég hefði byggt upp eitthvað of mikið í hausnum á mér því ég var alveg á taugum í leiknum. En ég náði að fá áhorfendur með mér í lið og til að klappa á réttum tíma,“ segir Ragna sem nýtti sér heimavöllinn, en hvað gerir hana ósigrandi hérna heima?
„Heimavöllurinn skiptir alltaf máli. Ég fíla mjög vel að spila hérna heima. Svo æfi ég auðvitað alltaf þarna í TBR-húsinu og þekki aðstæður vel. Ég hef verið þarna undanfarin 20 ár nánast upp á dag,“ segir hún og hlær.
Góð stig en býst ekki við hástökki
Fyrir sigurinn á Iceland International fær Ragna 2.500 stig á heimslistanum þar sem hún situr nú í 65. sæti. Stigin koma sér vel því Ragna berst nú fyrir því að komast á Ólympíuleikana sem fara fram í Lundúnum næsta sumar.
„Ég vil vera með þetta 2.200–2.500 stig að meðaltali í þeim mótum sem ég keppi á. Á mótinu í Þýskalandi um daginn fékk ég 2.720 stig og núna 2.500 þannig ég er að hækka meðaltalið mitt. Ég held ég fari samt ekki neitt mikið ofar á listanum því þetta snýst líka um hvað stelpurnar í kringum mig á listanum eru að gera. Það er líka einhvern veginn þannig að þegar maður er kominn í kringum þetta 60. sæti þá eru alltaf nokkur hundruð stig á milli sæta þannig ég held það verði ekkert hástökk hjá mér,“ segir Ragna, en hvernig stendur hún í baráttunni um sæti á Ólympíuleikunum?
„Það fara 38 efstu í heiminum þangað en bara mest þrjár frá hverju landi og það eru einhverjir tíu Kínverjar fyrir ofan mig. Ég er með sex góð mót núna af tíu en ég þarf alla vega fjögur góð mót í viðbót. Þegar maður telur samt niður listann í 38 stelpur og tekur frá þegar það eru of margar frá sama landi þá er ég inni á Ólympíuleikunum. Það er líka stefnan og ég sé ekkert annað í stöðunni en að fara,“ segir Ragna sem er ekki búin í ár.
Hún fer til Noregs á fimmtudaginn að keppa og svo til Skotlands um aðra helgi. Hún segist vera í toppformi og hnéð, sem fór svo illa fyrir nokkrum árum, er í góðu lagi.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
