Fljótasti maður heims, Jamaíkumaðurinn Usain Bolt, gaf það út um helgina að svo gæti farið að hann reyndi við fern gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Lundúnum árið 2012 en hann vann þrenn gullverðlaun í Peking árið 2008.
Í Peking vann hann 100 og 200 metra hlaupin og var einnig í boðsveit Jamaíku í 4x100 metra hlaupinu. Aðspurður hvort komi til greina að hlaupa 4x400 metra hlaupið komist Jamaíka í úrslit segir Bolt:
„Ef þeir þurfa á mér að halda, þá verð ég tilbúinn að hlaupa.“ Afar ólíklegt þykir að Jamaíka komist ekki í úrslit en það náði þriðja sæti í 4x400 metra hlaupinu á síðustu Ólympíuleikum og er ein sterkasta boðsveit heims.
Bolt tókst ekki að vinna 100 metra hlaupið á heimsmeistaramótinu í ágúst þar sem hann þjófstartaði og samkvæmt nýju reglunum var hann rekinn úr keppni án viðvörunar. Bolt ætlar sér að vinna bæði 100 og 200 metra hlaupin í Lundúnum og er hann hlakkar mikið til.
„Núna nálgast Ólympíutímabilið sem er alltaf sérstakt. Ég sjálfur byrjaði að æfa fyrir mánuði. Mér gengur vel á æfingum og ég er í virkilega góðu formi líkamlega. Ég fór nýlega í læknisskoðun í München þar sem allar niðurstöður voru á hinn besta veg. Ég hlakka svo svakalega til Ólympíuleikanna að ég er farinn að sleikja út um,“ segir Usain Bolt.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Chambers gæti snúið aftur á ÓL
Óðinn: Get kastað lengra en þetta
Gull hjá Gatlin - Tvö heimsmet í Tyrklandi
Íslendingur meistari í Crossfit í Svíþjóð
Usain Bolt vann 200 metra hlaupið
