ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Pacquiao varði titilinn

Vann Marquez á úrskurði dómara eftir 12 lotur

Bardaginn stóð yfir í 12 lotur og báðir boxarar gáfu allt í hann. Mynd: Reuters

Pacquaiao lendir góðu höggi beint í andlit Marquez.

Marquez svarar fyrir sig.

Svo fór að meirihluti dómara úrskurðaði Pacquaiao í vil.

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:57 › 13. nóvember 2011
  • Pacquaiao lendir góðu höggi beint í andlit Marquez.

    Pacquaiao lendir góðu höggi beint í andlit Marquez.Mynd: Reuters

  • Marquez svarar fyrir sig.

    Marquez svarar fyrir sig.Mynd: Reuters

Fara í myndagallerý →

Hnefaleikakappinn Manny Pacquiao varði WBO-heimsmeistaratitil sinn í veltivigt í Las Vegas í nótt þegar hann lagði áskorandann Juan Manuel Marquez. Bardaginn fór allar tólf loturnar og þurfti að leita til dómaranna til að fá úr því skorið hvor hefði farið með sigur úr býtum.

Báðir boxarar gáfu allt sitt í bardagann en hvorugur var sleginn í gólfið allan bardagann. Svo fór að tveir dómarar dæmdu Pacquiao í vil og sá þriðji dæmdi jafntefli.

Marquez var afar ósáttur við þessa niðurstöðu og yfirgaf hringinn í fússi eftir að úrskurður dómaranna hafði verið lesinn upp.
Þetta var í þriðja sinn sem kapparnir mætast í hringnum. Árið 2004 mættust þeir í fyrsta skipti og endaði hann í jafntefli. Pacquiao vann svo á umdeildri dómaraniðurstöðu fjórum árum síðan.

Pacquiao er talinn einn besti hnefaleikakappi veraldar, pund fyrir pund, en hann hafði fyrir bardagann í nótt unnið 10 titla í átta mismunandi þyngdarflokkum.

Nú standa vonir til að loksins muni bardaginn: Floyd Mayweather Jr. gegn Manny Pacquiao verða að veruleika. Beðið hefur verið eftir þeim bardaga í mörg ár en hingað til hafa aldrei náðst samningar um bardagann sem yrði sá allra stærsti í fjölmörg ár í hnefaleikaheiminum. Bæði Mayweather og Pacquiao hafa lýst því yfir að þeir séu klárir í slaginn, á meðan bíða boxáhugamenn með krosslagða fingur.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?