Aukaþjálfari fótboltaliðsins í Penn State háskólanum í Bandaríkjunum, Jerry Sandusky, hefur verið ákærður fyrir að misnota a.m.k. átta drengi kynferðislega á seinustu árum. Sandusky hefur 40 kærur á hendur sér fyrir afbrot sem hann framdi yfir áratuga tímabil. Hann var látinn laus úr varðhaldi gegn tryggingu upp á 100.000 dali en hann gæti fengið lífstíðardóm í fangelsi fyrir afbrotin.
Aðstoðarþjálfari liðsins, Mike McQueary, kom að aukaþjálfaranum nauðgandi 10 ára dreng í búningsklefanum árið 2002. Hann lét íþróttakennarann og konrektor vita af því sem hann sá og þeir létu skólastjórann vita. Þeir gerðu lögreglunni hins vegar aldrei viðvart.
Þjálfari fótboltaliðsins og skólastjóri Penn State hafa verið reknir en íþróttakennari skólans og konrektor verða ákærðir fyrir að hafa ekki gert lögreglunni viðvart. Aðstoðarþjálfarinn McQueary hefur verið vísað frá skólanum tímabundið, með launum.
Eftir hneykslið fóru þúsundir nemenda Penn State að mótmæla brottrekstri þjálfarans Joe Paterno, sem hefur verið liðþjálfi fótboltaliðs skólans í 46 ár. Í upphafi voru mótmælin friðsamleg en mikill hiti færðist í leikinn og mótmælin breyttust í óeirðir þar sem nemendur rifu niður ljósastaura, köstuðu steinum í lögreglu og veltu bílum.
Þáttastjórnandinn Jon Stewart í The Daily Show gagnrýndi nemendurna fyrir óeirðirnar og líkti málinu við kynferðisbrotamál kaþólsku kirkjunnar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
