ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Vettel heimsmeistari eftir að hafa komið þriðji í mark

Button sigraði á Suzuka
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
08:31 › 9. október 2011
Vettel er yngsti tvöfaldi heimsmeistarinn í sögu Formúlu 1.

Vettel er yngsti tvöfaldi heimsmeistarinn í sögu Formúlu 1. Mynd Reuters

  • Sigrunum fagnað. Button og Vettel fögnuðu sigrum sínum saman.

    Sigrunum fagnað. Button og Vettel fögnuðu sigrum sínum saman.Mynd Reuters

  • Liðsfélagar Vettel voru að vonum ánægðir með árangurinn.

    Liðsfélagar Vettel voru að vonum ánægðir með árangurinn.Mynd Reuters

Ökuþórinn Sebastian Vettel tryggði sér í morgun heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1-kappakstrinum. Hampar hann titlinum annað árið í röð. Með sigrinum í ár hefur Vettel skráð nafn sitt á spjöld sögunnar sem yngsti tvöfaldi heimsmeistarinn frá upphafi Formúlu 1-keppninnar. Vettel er ekki nema 24 ára og 98 daga gamall.

Sigurinn tryggði Vettel sér á Suzuka-brautinni í Japan. Hann vann þó ekki keppnina heldur kom þriðji í mark á eftir Jenson Button, hjá McLaren, og Fernando Alonso, hjá Ferrari. Félagi hans úr Red Bull-Renault-liðinu var svo fjórði maður í mark en með stigunum komu þeir liði sínu í enn öruggari stöðu á toppi stigalista bílaframleiðanda.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?