ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Massa skipað að eyðileggja fyrir Hamilton

Fjaðrafok vegna liðskipanar Ferrari
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:00 › 5. október 2011
Felipe Massa þurfti að hlýða Smedley.

Felipe Massa þurfti að hlýða Smedley. Mynd Reuters

Upp er komið mikið fjaðrafok í Formúlu 1 eftir að myndband birtist úr síðustu keppni í Singapúr þar sem hljóðbútur heyrist frá Ferrari-liðinu. Þar er Felipe Massa skipað að hægja eins mikið á Lewis Hamilton, ökumanni McLaren, og hægt er. „Hægðu á honum eins mikið og þú getur. Eyðilegðu keppnina fyrir honum eins mikið og þú getur. Koma svo, drengur,“ hljóðaði skipunin frá Rob Smedley, keppnisstjóra Brasilíumannsins.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem samskipti Massa og Smedley komast í fréttirnar en í fyrra varð allt vitlaust þegar Smedley benti Massa á að Fernando Alonso væri að keyra hraðar en hann. Það voru augljós skilaboð um að hann ætti að hleypa Alonso fram úr, sem hann og gerði. Í fyrra voru bein skilaboð til ökumanna bönnuð og var Ferrari sektað um 100.000 dollara. Ekkert verður þó gert í þessu.

Massa braut ekkert af sér en þetta heppnaðist svo vel að Hamilton keyrði aftan á Massa, sprengdi hjá honum dekk, braut sinn eigin framvæng og fékk víti fyrir athæfið. Hamilton var gert skylt að keyra í gegnum viðgerðarsvæðið en það er ekki í fyrsta sinn sem honum hefur verið refsað á árinu. Hann lét líka óánægju sína í ljós. „Ég trúi þessu ekki,“ kallaði hann hátt í talstöðina þegar verið var að laga bílinn hans. Þegar hann svo var látinn taka vítið með því að aka í gegnum þjónustusvæðið sagði hann: „Auðvitað er ég látinn keyra í gegn.“

Ferrari hefur ekki tjáð sig um málið en á bloggsíðu liðsins sem það notar oft til að koma hástemmdum yfirlýsingum sínum á framfæri án þess að þau komi beint frá liðinu var athæfið varið. „Það er satt að keppnisstjóri Massa missti sig í hita leiksins og notaði sagnorðið að eyðileggja einu sinni. Það var vissulega ekki heppilegasta orðið til að nota en Smedley meinti ekkert illt með þessu. Hann vildi bara kveikja í Massa. Hann vildi Hamilton ekkert illt enda er hann borinn og barnfæddur Englendingur.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?