Landsliðsþjálfarinn í fótbolta, Ólafur Jóhannesson, hefur samþykkt að taka við 1. deildar liði Hauka samkvæmt heimildum DV og verður tilkynntur sem nýr þjálfari liðsins eftir helgi.
Valsgoðsögnin Sigurbjörn Hreiðarsson sem lék sinn síðasta leik að Hlíðarenda síðastliðinn laugardag verður spilandi aðstoðarþjálfari Ólafs.
Ólafur er staddur í Portúgal þar sem Ísland mætir heimamönnum í lokaleik undankeppni EM 2012 á föstudagskvöldið. Það verður síðasti leikur hans sem landsliðsþjálfari Íslands.
Haukar féllu úr Pepsi-deildinni í fyrra en lentu í þriðja sæti 1. deildar undir stjórn Magnúsar Gylfasonar í sumar. Magnús yfirgaf Haukana eftir tímabilið til að taka við ÍBV.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
