Meiðsli íslenska landsliðsframherjans Kolbeins Sigþórssonar, sem leikur með Ajax í Hollandi, eru alvarlegri en fyrst var haldið. Heimasíða Ajax greinir frá því í dag að Kolbeinn verði frá allt fram í janúar vegna ökklabrots.
Kolbeinn fékk högg á ökklann í leik í hollensku úrvalsdeildinni gegn Groningen á sunnudaginn og var fyrst haldið að meiðslin væru ekki alvarleg þó hann þyrfti að draga sig úr landsliðshópnum sem mætir Portúgal á föstudaginn. Síðar kom í ljós að hann var brotinn.
Hann verður því mun lengur frá en reiknað var með. Það eru eðlilega skelfileg tíðindi fyrir þennan efnilega framherja sem hefur farið frábærlega að stað með hollenska stórveldinu Ajax og nú þegar skorað fimm deildarmörk.
Kolbeinn hefur á sínum stutta ferli glímt við ansi mikið af meiðslum en það er vonandi að hann komi sterkur til baka eftir áramótin. Ajax er sem stendur í fjórða sæti hollensku úrvalsdeildarinnar með 15 stig, sex stigum á eftir toppliði AZ.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
