ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Tileinkaði látnum félögum sigurinn

Vettel minntist Wheldon og Simoncelli
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:19 › 31. október 2011
Vettel drekkur kampavín úr verðlaunagripnum á Indlandi.

Vettel drekkur kampavín úr verðlaunagripnum á Indlandi. Mynd Reuters

Sebastian Vettel hélt áfram drottnun sinni í Formúlu 1 á sunnudagsmorgun þegar hann kom fyrstur í mark á Indlandi en þetta var í fyrsta skipti sem keppt er þar í landi.

Helgin var fullkomin hjá Vettel sem var á ráspól einu sinni sem oftar, leiddi keppnina frá fyrsta hring til þess síðasta og kom fyrstur í mark í ellefta skipti á tímabilinu.

Hann er fyrir löngu búinn að tryggja sér sinn annan heimsmeistaratitil í röð en gefur hvergi eftir og eiga keppinautar hans ekki möguleika í hann og Red Bull-bílinn þegar sú blanda er upp á sitt besta.

Jenson Button á McLaren varð annar og Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji. Þeir, ásamt Mark Webber á Red Bull og Lewis Hamilton á McLaren, berjast í síðustu tveimur keppnunum um annað og þriðja sætið í stigamótinu.

Silfrið hjá Button á Indlandi kemur honum í góða stöðu um annað sætið en Red Bull vill ólmt koma Webber í það minnsta á pall og fá því verðlaunapening á báða ökumenn sína. Liðið er nú þegar orðið heimsmeistari bílasmiða, annað árið í röð.

Síðan síðast var keppt í Formúlu 1 hafa tveir akstursíþróttakappar látið lífið. Breski Indy-kappakstursmaðurinn Dan Wheldon lést í Las Vegas fyrir tveimur vikum og á sunnudaginn fyrir viku lést ítalski vélhjólakappinn Marco Simoncelli í Malasíu.

Keppt var þeim til heiðurs í Formúlunni á Indlandi og heimsmeistarinn Sebastian Vettel minntist þeirra á blaðamannafundinum eftir keppni.

„Þessum sigri fylgja blendnar tilfinningar. Auðvitað er gaman að vinna en hugur okkar allra er með félögum okkar sem létu lífið. Vissulega tökum við allir áhættu í hverri keppni sem við tökum þátt í en þessi slys eru óþægileg áminning um hvað getur gerst. Við hugsum hlýtt til þeirra,“ sagði Sebastian Vettel.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?