ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ

Vann eftir umspil gegn Michael Kim
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:26 › 31. október 2011
Rory fékk vel borgað fyrir sigurinn í Sjanghæ.

Rory fékk vel borgað fyrir sigurinn í Sjanghæ. Mynd Reuters

Norður-Írinn Rory McIlroy landaði sigri á Shanghæ-meistaramótinu í golfi um helgina eftir umspil gegn Bandaríkjamanninum Michael Kim.

Fyrstu verðlaun í Shanghæ eru þau mestu sem gefast í íþróttinni en fyrir fyrsta sætið fékk Norður-Írinn ungi 1,25 milljónir punda eða sem nemur 227 milljónum króna.

Suður-Kóreumaðurinn Noh Seung-yu og Bandaríkjamaðurinn Hunter Mahan urðu jafnir í þriðja sæti. Fimm höggum á eftir þeim var Lee Westwood sem fór holu í höggi á tólftu holu á lokadeginum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?