Sebastian Vettel á Red Bull átti fullkomna helgi á Indlandi þar sem Formúla 1 fór fram um helgina í fyrsta sinn á nýrri og glæsilegri braut. Vettel var á ráspól fyrir keppnina, leiddi frá fyrsta hring til þess síðasta og kom fyrstur í mark í ellefta skipti á árinu.
Vettel er nú þegar búinn að tryggja sér sinn annan heimsmeistaratitil í röð fyrir nokkrum vikum en hann gefur ekkert eftir og vann í dag sína fimmtu keppni af síðustu sex. Jenson Button á McLaren varð annar og Fernando Alonso á Ferrari náði þriðja sætinu.
Baráttan í síðustu tveimur keppnunum sem fram fara í Abu Dahbi og Brasilíu snýst um hverjir ná öðru og þriðja sæti í stigamótinu um þau sæti keppa Button (240 stig), Alonso (227 stig), Mark Webber (221 stig) og Lewis Hamilton (202 stig).
Á blaðamannafundi eftir keppnina sagði Vettel að sigrinum fylgdu blendnar tilfinningar. Að sjálfsögðu væri gaman að vinna en hugur hans og allra ökumanna væri með akstursíþróttamönnunum tveimur sem látið höfðu lífið frá síðustu F1-keppni, Indy-kappakstursmanninum Dan Wheldon og vélhjólakappanum Marco Simoncelli.
Keppnin í dag var ekin þeim til heiðurs.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
