Miðjumaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson mun leika með uppeldisfélagi sínu ÍA í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á næsta tímabili. Þetta var staðfest á svokölluð Karlakvöldi ÍA í kvöld. Jóhannes Karl hefur svo staðfest fréttirnar á Facebook-síðu sinni nú fyrir stundu.
Í sumar fór að heyrast sá orðrómur að Jóhannes Karl ætlaði að snúa aftur heim til Íslands á næstunni eftir atvinnumennsku erlendis. Fljótt kom ÍA inn í myndina enda uppeldisfélag Jóhannesar. Hann fór ungur út í atvinnumennsku aðeins átján ára gamall, áður en hann náði að spila deildarleik með meistaraflokki ÍA. Samdi hann við belgíska félagið Racing Genk árið 1998. Árið 2000 samdi hann við hollenska félagið RKC Waalwijk þar sem hann sló í gegn á sínu fyrsta og eina tímabili. Árið 2001 samdi Jóhannes við spænska félagið Real Betis. Hann fékk fá tækifæri þar og var samningsbundinn spænska liðinu til ársins 2004 en í millitíðinni fór hann að láni til meðal annars Aston Villa og Wolves á Englandi. Hann lék í tvö ár með Leicester City á Englandi eftir að hann fór frá Betis, síðan eitt ár með AZ Alkmaar í Hollandi áður en hann gekk til liðs við Burnely á Englandi. Þar lék hann frá 2007-2010. Í fyrra samdi hann við Huddersfield Town en fékk sig lausan undan samningi við það félag fyrir skemmstu og er nú aftur komin heim á Skagann, eftir 13 ár í atvinnumennsku erlendis.
Jóhannes Karl hefur að auki leikið 34 landsleiki fyrir Ísland og er ljóst að hann mun reynast ÍA liðinu mikill styrkur næsta sumar í Pepsi-deildinni þar sem liðið leikur aftur eftir of langa fjarveru úr efstu deild að mati heimamanna.
Jóhannes Karl tilkynnti um félagsskiptin á Facebook-síðu sinni í kvöld með eftirfarandi orðum:
„Sól slær silfri á voga sjáðu jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim því ég er að koma HEIM!“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
