Öryggisnefnd MotoGP-kappakstursins segir að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir hryllilegt slys sem varð hinum 24 ára Ítala, Marco Simoncelli, að aldurtila á brautinni í Sepang í Malasíu á sunnudaginn.
Simoncelli rann af hjóli sínu þvert yfir brautina á öðrum hring og fór í veg fyrir tvö hjól með þeim afleiðingum að hjálmur hans brotnaði af honum. Simoncelli lést af völdum áverka á höfuð, háls og bringu.
„Við höfum gert miklar öryggisráðstafanir í MotoGP og við erum ánægðir með þær breytingar,“ segir Franco Uncini, formaður öryggisnefndar MotoGP.
Ekki hefur verið banaslys í MotoGP-mótaröðinni síðan árið 2003 en í fyrra lést nítján ára japanskur strákur í Moto2-mótaröðinni. Sjálfur lá Uncini í dái eftir að hafa lent í svipuðu slysi og Simoncelli árið 1983.
„Því miður höfum við ekkert vald á örlögunum. Þegar eitthvað svona gerist þá erum við varnarlaus. Við verðum að sætta okkur við það að stundum gerast hlutir, hræðilegir hlutir, sem ekkert er hægt að gera í,“ segir Uncini.
Ítalska þjóðin er harmi slegin yfir dauða Simoncelli sem var einn dáðasti íþróttamaður landsins, aðeins 24 ára að aldri. Hann var gjarnan kallaður Súper-Sic.
Þeir leikir í ítölsku A-deildinni í fótbolta sem leiknir voru á sunnudaginn hófust allir með einnar mínútu þögn í virðingarskyni við Simoncelli og þá hafa íbúar í heimabæ hans, Coriano, keppst við að leggja blóm og kransa við tröppur kirkjunnar í bænum.
Reiknað er með að íbúar fái að berja líkið augum í borgarleikhúsi Coriano í dag.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
