Ítalski vélhjólakappakstursmaðurinn Marco Simoncelli lést í MotoGP-keppni í dag er hann lenti í slysi á braut í Sepang í Malasíu.
Hinn 24 ára gamli Simoncelli var að beygja þvert yfir brautina en missti stjórn á hjólinu og fékk keppinauta sína, Colin Edwards og margfalda heimsmeistarann, Valentino Rossi, á sig á fullri ferð. Simoncelli missti hjálminn við atvikið lá hann hreyfingarlaus á brautinni.
Hinn ameríski Colin Edwards slapp við alvarleg meiðsli en þurfti þó að draga sig úr keppni. Rossi slapp algjörlega ómeiddur og hélt á Ducati-hjóli sínu inn á viðgerðarsvæðið.
Keppni var hætt og farið var að hlúa að Simoncelli. Hann var í fjórða sæti þegar slysið varð en keppendur höfðu aðeins lokið tveimur hringjum.
„Marco Simoncelli varð fyrir banvænum meiðslum í MotoGP-keppninni í Malasíu,“ segir í stuttri yfirlýsingu sem forsvarsmenn keppninnar gáfu út til þess að staðfesta andlát Simoncelli.
Simoncelli var talinn eitt mesta efnið í MotoGP-kappakstrinum en hann á að baki heimsmeistaratitil í 250cc-flokki frá árinu 2008, þá aðeins 21 árs gamall.
Hann fékk tækifærið í MotoGP, sem er stærsta mótaröðin í vélhjólakappakstri, í fyrra og endaði stigamótið í áttunda sæti. Hann var í sjötta sæti fyrir keppnina í dag en hún er sú næstsíðasta á keppnistímabilinu.
Aðeins er vika síðan að annar dáður akstursíþróttakappi, Dan Wheldon, tvöfaldur sigurvegari í hinum fræga Indianapolis 500-kappakstri, lést í keppni í Las Vegas.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 



Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
