Fagna með íslenska fánanum. Samúel Ólafur (t.h. á mynd) og félagi hans fagna eftir að hafa tryggt sér annað sætið á Kabúlleikunum í Crossfit. Myndir: Úr einkasafni
„Ég byrjaði í Crossfit fyrir svona einum og hálfum mánuði síðan,“ segir Samúel Albert William Ólafsson sem stóð sig frábærlega á Crossfit-móti sem haldið var í Kabúl í Afganistan í gær á vegum bandaríska sendiráðsins. Hinn 23 ára gamli Samúel Albert hafnaði í 2. sæti keppninnar þrátt fyrir að vera nýliði í greininni.
Samúel Albert starfar fyrir Nato í Afganistan og hefur æft stíft undanfarnar vikur fyrir keppnina sem bar yfirskriftina 2011 Mission Afganistan Games. „Þetta er góður hópur hérna og við erum með leiðbeinanda frá bandaríska hernum sem er búinn að vera að þjálfa okkur. Þetta eru svaka naglar og ekkert gefið eftir,“ segir Samúel þegar DV náði tali af honum í Kabúl.
Samúel og félögum í Crossfit-hópnum var boðið að taka þátt í mótinu þar sem keppt var í þremur flokkum. Kvennaflokk og svo tveimur þyngdarflokkum hjá körlunum.
„Við vorum tveir saman í liði, sem er óvenjulegt í Crossfit, en mottó þessara leika er eitthvað á þá leið að stríðið hérna er ekki eitthvað sem ein þjóð vinnur heldur er það gert með samvinnu.“
Samúel mætti til keppni í gærmorgun og í anda yfirskriftar keppninnar var dregið í lið. Hann endaði með ókunnugum en hraustum Bandaríkjamanni og samstarfið gekk líka svona ljómandi vel.
„Þetta var svakalega gaman og fín auglýsing fyrir þetta íþróttaform,“ segir Samúel sem viðurkennir að íslenska Crossfit-afrekskonan Annie Mist Þórisdóttir hafi verið honum mikill innblástur.
„Þótt ég segi sjálfur frá þá er ég stoltur af sjálfum mér. Ég stóð mig betur en mig grunaði, náði meiri þyngdum og betri tíma en ég þorði að vona. Það munaði bara 2 sekúndum á fyrsta og öðru sætinu,“ segir Samúel Albert sáttur en hann fékk góðan stuðning frá íslenskum félögum sínum þarna úti.
Nýjasti silfurverðlaunahafi Íslendinga þarf þó eitthvað að bíða eftir silfurpeningnum sínum sem sat fastur í flutningum í hinu stríðshrjáða landi. „Við fengum reyndar silfurpeninga úr plasti þar til að hinir berast.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
