„Þetta leggst mjög vel í mig. Aðstæður eru flottar og Víkingur er stór klúbbur þó skort hafi upp á árangur undanfarið,“ segir harðjaxlinn Ólafur Þórðarson sem tilkynntur var sem nýr þjálfari Víkings á lokahófi félagsins í gærkvöldi.
Ólafur sagði starfi sínu lausu hjá Fylki fyrir lokaumferðina í gær og kveður nú Pepsi-deildina til að taka slaginn með Víkingum í 1. deildinni næsta sumar. Hann gerir þriggja ára samning við félagið.
„Mér finnst spennandi hvað Víkingar ætla að gera,“ segir Ólafur. „Þeir ætla sér strax upp aftur og hafa vilja og metnað til að spila aftur á meðal þeirra bestu. Metnaður Víkings hentar því minni hugmyndafræði.“
Víkingur hefur verið mikið í umræðunni í sumar og oft í neikvæðu ljósi vegna háleitra markmiða, þjálfararáðninga og nú síðast agavandamála sem fráfarandi þjálfari, Bjarnólfur Lárusson, hefur sagst vera taka á. Ólaf segir þetta ekki hafa hindrað hann í að skrifa undir.
„Nei, nei, þetta er ekkert vandamál. Það verður núna mitt mál að koma á friði og ró þarna og að því stefni ég. Það er alveg á hreinu að ég mun taka agamálum föstum tökum,“ segir Ólafur Þórðarson.
Nánar er rætt við Ólaf í DV á morgun



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
