ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Ólafur Þórðarson ráðinn þjálfari Víkings

Helgi Sigurðsson aðstoðarmaður
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:04 › 2. október 2011
Ólafur Þórðarson fer úr Árbænum í Fossvoginn.

Ólafur Þórðarson fer úr Árbænum í Fossvoginn. Mynd Tomasz Kolodziejski

Ólafur Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Víkings en Víkingar féllu úr Pepsi-deildinni í ár. Þetta var opinberað á lokahófi félagsins í gærkvöldi. Hann gerir þriggja ára samning við Víking.

Ólafur sagði starfi sínu lausu hjá Fylki fyrir lokaumferðina í gær þar sem Árbæjarliðið tapaði gegn FH, 5-3. Hann hefur stýrt Fylki í þrjú ár og náði best þriðja sætinu árið 2009.

Áður hefur Ólafur þjálfað ÍA, sem hann gerði að Íslandsmeisturum árið 2001, og Fram en hann var aðeins eitt ár í Safamýrinni, tímabilið 2007.

Helgi Sigurðsson verður spilandi aðstoðarþjálfari en Helgi lék lykilþátt í því að koma liðinu upp úr 1. deildinni í fyrra. Hann gat þó lítið verið með í ár vegna meiðsla.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?