ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Ólafur tekinn við Haukum

Gerir þriggja ára samning
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:35 › 17. október 2011
Ólafur fer úr landsliðsþjálfun í 1. deild.

Ólafur fer úr landsliðsþjálfun í 1. deild. Mynd Róbert Reynisson

Fyrrverandi landsliðsþjálfarinn í fótbolta, Ólafur Jóhannesson, skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Hauka og stýrir liðinu í 1. deildinni á komandi tímabili. Á sama tíma var tilkynnt að Sigurbjörn Hreiðarsson yrði spilandi aðstoðarmaður Ólafs.

Ólafur tekur við starfinu af Magnúsi Gylfasyni sem hélt til Eyja eftir tímabilið og tók þar við starfi Heimis Hallgrímssonar en hann var á dögunum ráðinn nýr aðstoðarþjálfari landsliðsins.

Ólafur hefur stýrt íslenska landsliðinu undanfarin fjögur ár en síðasti leikur hans með Ísland var 5-3 tapið gegn Portúgal ytra á dögunum.

Hann gerði FH að Íslandsmeisturum þrjú ár í röð frá 2004-2006 áður en hann var ráðinn landsliðsþjálfari Íslands.

Haukar enduðu í þriðja sæti 1. deildar á síðasta ári undir stjórn Magnúsar Gylfasonar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?