Sebastian Vettel vann sinn tíunda sigur á tímabilinu í Formúlu 1 þegar hann kom fyrstur í mark í Suður-Kóreu á sunnudagsmorgun. Þar sem liðsfélagi hans hjá Red Bull, Mark Webber, náði þriðja sæti tryggði liðið sér heimsmeistaratitil bílasmiða þegar þrjár keppnir eru enn eftir.
Vettel varð heimsmeistari um síðustu helgi þegar hann náði þriðja sæti í Japan og fóru því báðir titlar ársins til Red Bull.
Lewis Hamilton á McLaren komst aftur á verðlaunapall í fyrsta skiptið í sex keppnum er hann varð í öðru sæti í Suður-Kóreu. Jenson Button á McLaren varð fjórði og Fernando Alonso á Ferrari fimmti.
Hörð barátta stendur því enn yfir um annað og þriðja sætið og kom Hamilton sér heldur betur aftur í baráttuna með silfrinu í Suður-Kóreu. Hann er nú aðeins tuttugu og sex stigum á eftir Button sem er í öðru sætinu.
„Það er gott að komast aftur á verðlaunapall,“ segir Hamilton. „Ég var undir mikilli pressu að standa mig og því er ég virkilega ánægður með frammistöðuna. Ég náði að halda mér rólegum allan tímann og keyrði ekki út af eða á neinn. Það var svona það jákvæða við daginn,“ segir Hamilton sem hefur ekið á Felipe Massa í síðustu tveimur keppnum.
„Ég er ánægður með að vera aftur sá sem rakar inn flestum stigum fyrir liðið. Það hefði verið auðvelt að klúðra málunum í dag, sérstaklega undir allir þessari pressu. Ég var samt rólegur, fór ekki út af brautinni og gerði engin mistök. Í síðustu sex keppnum hef ég ekki einu sinni verið nálægt því að komast á pall. Þetta er eitthvað sem ég þarf að byggja á og reyna að ná í eins mörg stig og ég get í síðustu þremur keppnunum. Það er ekkert úr vegi að ég geti náð öðru eða þriðja sæti í stigamótinu,“ segir Lewis Hamilton.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
