ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Brady bjargaði Patriots í 35. sinn

Packers eina ósigraða liðið eftir sex umferðir í NFL

Brady sýndi hvað hann getur í lokasókninni í gær. Mynd Reuters

49ers hafa komið á óvart í ár.

Ahmad Bradshaw fór á kostum fyrir Giants.

Eagles vann loks leik.

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:40 › 17. október 2011
  • 49ers hafa komið á óvart í ár.

    49ers hafa komið á óvart í ár.Mynd Reuters

  • Ahmad Bradshaw fór á kostum fyrir Giants.

    Ahmad Bradshaw fór á kostum fyrir Giants.Mynd Reuters

Fara í myndagallerý →

New England Patriots lenti í kröppum dansi þegar liðið mætti Dallas Cowboys á heimavelli sínum í NFL-deildinni í gær. Fyrir leikinn hafði Patriots unnið nítján leiki í röð á heimavelli og hefði það ekki verið fyrir ótrúlega takta leikstjórnandans Tom Brady í lokasókn Patriots hefðu kúrekarnir yfirgefið Foxbrough með sigur í farteskinu.

Þegar 2 mínútur og 31 sekúnda var eftir leiddi Cowboys með þremur stigum, 16-13. Allan leikinn hafði vörn Cowboys gert Brady erfitt fyrir en eins og svo oft áður bjargaði Brady sínum mönnum í lokasókninni.

Brady var 78 metra frá marki en með átta heppnuðum sendingum af níu, sú síðasta sending fyrir snertimarki á Aaron Hernandez, kom Brady Patriots yfir þegar 22 sekúndur voru eftir. Það var of lítill tími fyrir kúrekana að gera eitthvað og enduðu leikar 20-16.

Þetta er í 35. skiptið sem Tom Brady kemur Patriots til bjargar með snertimarki fyrir sigri á lokasekúndum leiks

Packers eina ósigraða liðið
Meistarar Green Bay Packers halda áfram að sýna að þeir eru liðið til að vinna í NFL-deildinni í ár. Þeir buðu upp á gamaldagsbúninga á heimavelli gegn St. Louis Rams og hreinlega völtuðu yfir gestina, 24-3.

Packers er eina liðið sem enn er ósigrað því hitt ósigraða liðið fyrir helgina, Detroit Lions, tapaði á heimavelli gegn einu af spútnikliðum deildarinnar, San Francisco 49ers, 25-19.

Eftir leikinn varð uppþot milli þjálfara liðanna þegar þjálfari 49ers var aðeins of kátur er þeir tókust í hendur og sló hann þjálfara Lions í bakið af gleði. Ætlaði þá þjálfari Lions að hjóla í kollega sinn en honum var haldið aftur af leikmönnum sínum.

Góðir sigrar hjá Giants og Eagles
Hið sjálfnefnda draumalið Philadelphia Eagles vann loks leik eftir að hafa tapað fjórum í röð. Eagles fór nokkuð létt með Washington Redskins, 20-13, en hjá Eagles átti hlauparinn LeSean McCoy góðan leik. Hann hljóp 126 metra með boltann og skoraði eitt snertimark.

Þá vann New York Giants nágrannaslaginn gegn Buffalo Bills en Bills hafa verið frábærir í ár og aðeins tapað einum leik fyrir gærdaginn. Hlauparin Ahmad Bradshaw fór á kostum hjá Giants, hljóp 104 metra með boltann og skoraði þrjú snertimörk. Bæði lið hafa nú unnið fjóra leiki og tapað tveimur.

Í kvöld fer svo fram mánudagsleikurinn þar sem Miami Dolphins sækir heim New York Jets. Höfrungarnir eiga enn eftir að vinna leik en Jets hefur unnið tvo og tapað þremur og þarf sárlega að vinna í kvöld.

Öll úrslit gærdagsins má sjá hér.
Stöðuna í deildinni má sjá hér.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?