Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ og Lars Lagerbäck takast í hendur á blaðamannafundinum nú fyrir stundu. Heimir Hallgrímsson, nýr aðstoðarþjálfari, sést einnig á myndinni. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Svíþjóðar, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi þjálfari ÍBV, er nýr aðstoðarþjálfari landsliðsins. Frá þessu var greint á blaðamannafundi KSÍ í hádeginu.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, greindi meðal annars frá því á fundinum að endanleg ákvörðun hefði verið tekin um það fyrir tveimur mánuðum síðan að næsti landsliðsþjálfari yrði erlendur. Tími væri kominn á ferska vinda í íslenska knattspyrnu. Geir lýsti yfir að það væri mikill fengur að fá Lagerbäck enda væri hann einn reyndasti landsliðsþjálfari í Evrópu.
Aðspurður viðurkenndi Geir að forsvarsmenn KSÍ hefðu rætt við Roy Keane um að taka að sér starfið. Flogið hafi verið út til Englands til að ræða við kappann en ekkert komið út úr því.
Eins og fram hefur komið greindi sænska dagblaðið Expressen frá því að heimildir blaðsins hermdu að Lagerbäck myndi fá 65 milljónir í árslaun. Forsvarsmenn KSÍ sögðust ekki ætla að upplýsa um hvað hinn nýi landsliðsþjálfari fær greitt fyrir starfið, slíkt væri ekki gefið upp. Viðurkenndu þeir þó að útgjöldin hækkuðu með ráðningu Lagerbäck.
Sjálfur sagði nýi landsliðsþjálfarinn er fyrsta reglan væri að trúa ekki öllu sem Expressen skrifaði.
Lagerbäck ávarpaði viðstadda og byrjaði á því að biðjast afsökunar á því að tala ekki íslensku. Á ensku sagðist hann þó spenntur fyrir starfinu, það væri mikill heiður að vera ráðinn landsliðsþjálfari Íslands enda hefði hann alltaf borið mikla virðingu fyrir íslenskri knattspyrnu.
Hann viðurkenndi fúslega að erfitt væri fyrir litlar þjóðir að komast á stórmót, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins, hefði brotið ísinn og vænti Lagerbäck þess að engin ástæða væri til að ætla að karlarnir gætu það ekki líka. Hann lýsti því yfir að hann væri kominn hingað til að vinna, ekki tapa.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
