Willum Þór Þórsson hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Leiknis í Breiðholti en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins. Willum þjálfaði síðast Keflavík en fékk ekki endurnýjaðan samning þar eftir tímabilið í sumar.
Willum hefur þjálfað Keflavík, Val og KR á undanförnum árum en þau tvö síðarnefndu gerði hann bæði að Íslandsmeisturum og einnig varð hann bikarmeistari með Val.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Willum þjálfar lið í neðri deildum en hann kom á sínum tíma Haukum upp úr 3. og 2. deild og komst einnig upp úr 1. deild með Þrótti. Hann er því öllu vanur þegar kemur að þjálfarastarfinu og verður mikill hvalreki fyrir Leiknismenn.
Willum tekur við starfinu af Zoran Miljcovic sem tókst að bjarga Leikni frá falli í lokaumferð eftir ævintýralegan lokasprett í 1. deildinni í sumar. Sigursteinn Gíslason stýrði Leikni í upphafi sumars en Garðar Gunnar Ásgeirsson tók við af honum þegar Sigursteinn þurfti frá að hverfa vegna veikinda.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
