ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Fyrstu tveimur vikum NBA-deildarinnar slaufað

Samningaviðræðum miðar ekkert áfram
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:11 › 11. október 2011
LeBron James mætir ekki á völlinn 1. nóvember og það gæti verið langt í að hann spili í NBA aftur sem og aðrir leikmenn deildarinnar.

LeBron James mætir ekki á völlinn 1. nóvember og það gæti verið langt í að hann spili í NBA aftur sem og aðrir leikmenn deildarinnar. Mynd Reuters

Fyrstu tveimur vikum NBA-deildarinnar í ár hefur verið slaufað þar sem forsvarsmenn deildarinnar og leikmannasamtökin ná ekki samningum í deilum sínum um kaup og kjör leikmanna.

Það virðist langt í að báðir aðilar komist að einhverskonar samkomulagi og má því fastlega búast við að fleiri vikum, og jafnvel mánuðum af komandi keppnistímabili í NBA verði slaufað.

Stór hluti af deilunni er sú að eigendur liðanna vilja róttækar breytingar á launastrúktúr deildarinnar. Þeir segjast hafa tapað yfir 300 milljón dollurum á síðasta ári eða því sem nemur 35 milljörðum króna.

Leikmannasamtökin, undir forystu Lakers-mannsins Derek Fischer, viðurkenna tapið en segja það ekki jafnmikið og eigendurnir vilja halda fram. Þeir eru aftur á móti harðlega á móti nýja harða launaþakinu sem eigendurnir vilja, launaskerðingunni sem fyrirhuguð er og hversu langir samningar mega vera.

„Við erum langt frá því að komast að samkomulagi,“ sagði David Stern, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar eftir að hann hitti leikmannasamtökin á sjö tíma löngum fundi í gærkvöldi. Þar átti að reyna koma deildinni að stað 1. nóvember eins og fyrirhugað var. Það tókst ekki.

Stern sagði að vegna þeirra leikja sem verða ekki spilaðir úr þessu mun tímabilið styttast í fyrsta skiptið síðan 1998 þegar svipuð deila var uppi á borðinu. Það tímabil voru aðeins spilaði fimmtíu leikir. „Með hverjum deginum sem líður munu fleiri leikir ekki verða spilaðir,“ segir David Stern.

Vegna þessara launadeilna eru margir leikmenn í deildinni að líta í kringum sig og ætla að spila í Evrópu eða Asíu til að hala inn pening. Kobe Bryant hefur til dæmis gert 40 daga samning við ítalska liðið Bologna. Þá ætlar Frakkinn Tony Parker hjá San Antonio Spurs að spila heima á meðan ekki er leikið í NBA-deildinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?