Sebastian Vettel er heimsmeistari í Formúlu 1 annað árið í röð en hann kom þriðji í mark á Suzuka-brautinni í Japan í gærmorgun. Vettel dugði eitt stig úr síðustu fimm keppnunum til þess að tryggja sér heimsmeistaratitilinn og það gerði hann auðveldlega. Jenson Button á McLaren varð fyrstur og Fernando Alonso á Ferrari annar.
Vettel er aðeins 24 ára og yngsti maðurinn í sögunni til þess að vinna heimsmeistaratitilinn í Formúlu tvisvar í röð. Yfirburðir hans hafa verið nær ómannlegir á árinu. Af þeim fimmtán keppnum sem búnar eru hefur Vettel unnið níu, lent fjórum sinnum í öðru sæti, einu sinni í þriðja sæti og aðeins einu sinni ekki komist á verðlaunapall en það var á heimavelli í Þýskalandi. Gjörsamlega magnað tímabil hjá mögnuðum ökuþór.
Annar titillinn betri
Enn eru fjórar keppnir eftir þannig að Vettel ferðast nú til Suður-Kóreu, Indlands, Abu Dhabi og Brasilíu sem heimsmeistari í ár og getur því notið næstu fjögurra keppna til hins ýtrasta. Í fyrra varð hann heimsmeistari á lokadegi eftir spennandi baráttu við Fernando Alonso á Ferrari.
„Í fyrra fagnaði maður aðeins titlinum en svo fór maður bara heim því tímabilið var búið og maður sá ekki bílinn í nokkra mánuði. Í ár er þetta öðruvísi sem gerir þetta enn skemmtilegra. Ég hlakka gríðarlega til næstu fjögurra keppna,“ sagði nýkrýndur heimsmeistari eftir keppnina í Japan.
„Að vinna hér í Japan er mjög sérstakt en svolítið skrítið á sama tíma. Það er samt ótrúlega gaman. Þetta mun taka smá tíma að síast inn hjá mér. Nú er mikið í gangi og allir vilja tala við mann. Það verður ekki fyrr en maður á rólega stund með fólkinu sem stendur mér næst í kvöld, á morgun eða á næstu vikum að ég mun átta mig á því hvað ég hef gert. Þá fæ ég smá tíma til að leyfa hlutunum að síast inn hjá mér,“ sagði Vettel.
Hrósað í hástert
McLaren-ökuþórarnir Jenson Button og Lewis Hamilton ásamt liðsfélaga Vettel hjá Red Bull, Mark Webber, og Fernando Alonso á Ferrari hafa keppt við Vettel um heimsmeistaratitilinn í ár. Það er að segja ef keppni má kalla því Þjóðverjinn hefur drottnað yfir þeim öllum í ár. Þeir kepptust hver við annan um að hrósa heimsmeistaranum unga eftir keppnina í Japan á sunnudaginn.
„Þetta var bara fullkomnun,“ sagði Lewis Hamilton og Button tók undir. „Þetta er ótrúlegt afrek. Við vissum allir að hann ætti eftir að gera þetta. Hann átti hið fullkomna tímabil. Vettel er einfaldlega undrabarn.“ Spánverjinn Fernando Alonso sem gerir margt skemmtilegra í lífinu en að tala vel um aðra gat ekki annað en hrósað Vettel.
„Hann keyrði fullkomlega í öllum keppnunum og í hvaða veðri það var. Það skipti ekki máli hvort um var að ræða tímatökur eða keppnina sjálfa, hvort það var þurrt eða blautt. Hann stóð sig alltaf vel og verðskuldar heimsmeistaratitilinn.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 












Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
