ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger

Truflaði Tiger í miðju pútti og hljóp inn á völlinn
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:45 › 10. október 2011
Tiger Woods var truflaður í miðju pútti í gær. Áhorfandi hljóp inn á völlinn og grýtti pylsu í átt að honum.

Tiger Woods var truflaður í miðju pútti í gær. Áhorfandi hljóp inn á völlinn og grýtti pylsu í átt að honum. Mynd: Reuters

Undarleg uppákoma varð á lokahring Frys.com Open-golfmótinu í gær þegar athyglissjúkur áhorfandi ruddist inn á völlinn þar sem Tiger Woods gerði sig kláran í að pútta. Maðurinn öskraði nafn Tigers og kastaði loks pylsu með öllu í átt að fyrrverandi besta kylfing veraldar.

Maðurinn komst þó aldrei mjög nálægt stórstjörnunni þar sem hann var að pútta á sjöundu flöt CordeValle-vallarins og gafst upp fyrir aðvífandi öryggisvörðum, lagðist í grasið og var borinn í burtu.

Maðurinn var víst ölvaður og var hann handtekinn eftir að hann var borinn af velli.

„Þegar ég leit upp þá var pylsan komin í loftið,“ sagði Woods eftir mótið sem í kjölfarið klúðraði púttinu fyrir fugl. Að öðru leyti kippti hann sér ekki upp við atvikið. „Hann var býsna langt frá mér. Hann hefur viljað komast í fréttirnar, og ég efast ekki um að það hafi honum tekist.“

Sjáðu myndband af atvikinu hér fyrir neðan:



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?