Adam Reeve, landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins í samkvæmisdönsum, hefur verið beðinn um að dæma Heimsmeistaramót í 10 dönsum í flokki áhugamanna á Spáni í apríl næstkomandi. Þá hefur Níelsi Einarssyni danskennara verið boðið að dæma Evrópumeistaramót í Suður-Amerískum samkvæmisdönsum í flokki áhugamanna í mars næstkomandi. Er þetta í fyrsta skipti sem íslenskir dómarar dæma á Heims- eða Evrópumeistaramótum.
Það er Alþjóðadansíþróttasambandið IDSF sem stendur fyrir mótunum og eru þau viðurkennd af Alþjóða Ólympíusambandinu sem Heims- og Evrópumeistaramót í dansíþróttum. Í tilkynningu frá Dansíþróttasambandi Íslands segir að þetta sé mikill heiður sem íslensku dómurunum er sýndur og mikil viðurkenning fyrir þeirra störf í þágu dansíþróttarinnar. Sex íslenskir þjálfarar og kennarar eru með alþjóðleg dómararéttindi á vegum IDSF.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
