ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Íslandsmeistaramót í samkvæmisdönsum

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
11:45 › 31. janúar 2011

Íslandsmeistaramót í samkvæmisdönsum með frjálsri aðferð fór fram um helgina. Jón Eyþór Gottskálksson og Denise Margrét Yaghi sigruðu í standard dönsum en Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir í suður-amerískum dönsum. Bæði pörin hafa tryggt sér þátttökurétt á heims- og Evrópumeistaramótum á vegum Alþjóðlega dansíþróttasambandsins IDSF og sæti í íslenska danslandsliðinu.

Í flokki ungmenna voru sigurvegarar Oliver Sigurjónsson og Rebekka Helga Sigurðardóttir í suður-amerískum dönsum en Freyþór Össurarson og Eyrún Stefánsdóttir í standard dönsum. Í flokki unglinga 14–15 ára voru það Birkir Örn Karlsson og Perla Steingrímsdóttir sem sigruðu í bæði standard dönsum og suður-amerískum dönsum. Í flokki unglinga 12–13 ára sigruðu Davíð Bjarni Chiarolanzio og Rakel Matthíasdóttir í bæði standard dönsum og suður-amerískum dönsum.

Jive í úrslitum á Íslandsmeistaramótinu:



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?