30 ára gamall Íslendingur varð að sætta sig við það í gær að fá ekki að fara um borð í flugvél Icelandair frá Gardemoen flugvelli í Noregi vegna ölvunar. Hafði hann verið að hita upp fyrir leik Íslands og Noregs á heimsmeistaramótinu í handbolta þar sem Íslendingar burstuðu Norðmenn.
Virðist hafa orðið einum of gaman hjá honum og var hann talinn svo drukkinn þegar hann ætlaði að fara um borð í flugvélina að kalla þurfti til lögreglu. Eftir að hafa verið meinað að fara um borð í flugvélina var hann með ólæti á flugvellinum. Var bæði dansandi og veifandi höndum og á endanum sá lögreglan sér ekki annað fært en að láta hann gista fangageymslur í bænum Lillestrøm.
Segir norska blaðið Eidsvoll Ullensaker sem greindi frá málinu á vefsíðu sinni að þegar stóru handboltahetjur mannsins í íslenska landsliðinu hafi á lokamínútum valtrað yfir Norðmenn hafi hinn 30 ára gamli Íslendingur verið aleinn í fangaklefa án samskipta við umheiminn.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
