ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

U21 árs liðið í umspil þrátt fyrir tap

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:03 › 7. september 2010
Eyjólfur er búinn að gera flotta hluti með U21 árs liðið.

Eyjólfur er búinn að gera flotta hluti með U21 árs liðið. Mynd DV

Íslenska U21 árs landsliðið í knattspyrnu þurfti að sætta sig við tap, 3-1, gegn Tékklandi í lokaleik riðilsins ytra. Tékkar komust í 3-0 áður en Alfreð Finnbogason náði að klóra í bakkann með gæsilegu marki. Þrátt fyrir tapið komst Íslands í umspil um laust sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Danmörku á næsta ári.

Það vantaði mikið af sterkum leikmönnum í íslenska liðið en alls vantaði sjö leikmenn úr liðinu sem lagði Þjóðverja, 4-1, hér heima fyrr í sumar.

Úrslit dagsins féllu þó með Íslendingum og verða þeir í pottinum þegar dregið verður í umspilinu á föstudaginn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.