ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Óli Jó: Getum borið höfuðið hátt

20:48 › 7. september 2010
Ólafur Jóhannesson ætlar sér sigur gegn Portúgal.

Ólafur Jóhannesson ætlar sér sigur gegn Portúgal. Mynd AFP

„Við spiluðum vel varnarlega og héldum hreinu í níutíu mínútur en því miður dugði það ekki í dag,“ sagði sársvekktur Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, í viðtali við Guðmund Benediktsson á Stöð 2 Sport eftir tap Íslands gegn Dönum, 1-0, á Parken í kvöld.

Íslendingar léku vel í leiknum og börðust grimmilega en mark Thomas Kahlenberg á fyrstu mínútu í uppbótartíma skildi liðin að.

„Ég sagði við strákana inn í klefa að við ættum að bera höfuðið hátt. Við spiluðum frábærlega, héldum góðu skipulagi og allir lögðu sig hundrað prósent fram í leikinn. Í flestum tilfellum myndi þetta duga,“ sagði Ólafur og bætti við að nú kæmi ekkert til greina nema sigur gegn Portúgal í október.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.