Það kom sparkspekingum mörgum á óvart þegar ljóst var að portúgalski huldumaðurinn Bebe var valinn í Meistaradeildahóp Manchester United. Engum kom það þó meira á óvart en Bebe sjálfum.
Bebe var keyptur óséður og gjörsamlega óþekktur af Man Utd í síðasta mánuði fyrir upphæð sem talin er nema allt að 7.4 milljónum punda. Þrátt fyrir að hafa aldrei séð hann spila sagði Alex Ferguson að Bebe ætti sér bjarta framtíð hjá félaginu.
„Það kom mér gríðarlega á óvart að vera í Meistaradeildarhópi liðsins,“ segir Bebe.
„Þetta er líkt og draumur. Ég hélt ég ætti ekki séns en nú er ég glaður. Ég vona að ég endurheimti sjálfstraustið innan tíðar, fari að spila leiki og skora mörk eins og ég veit að ég get.“
Bebe segir að hann sé að leggja hart af sér á æfingum á hverjum degi og vonast til að nýta tækifærið þegar það gefst.





Neymar búinn að skora 100 mörk á ferlinum
Köttur stal senunni á Anfield
Suarez ekki í byrjunarliði Liverpool
Róttæk hönnun á nýja keppnisbíl Ferrari
Enn ein endurkoman hjá Man. United