ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Grátlegt tap gegn Dönum á Parken

20:09 › 7. september 2010
Sölvi Geir í baráttunni við danska undrabarnið Christian Eriksen.

Sölvi Geir í baráttunni við danska undrabarnið Christian Eriksen. Mynd AFP

Ísland tapaði fyrir Danmörku, 1-0, á Parken í kvöld í leik liðanna í undankeppni EM 2012. Íslandi tókst að halda markinu hreinu í níutíu mínútur en þegar nokkrar sekúndur voru liðnar af uppbótartímanum skoraði Thomas Kahlenberg sigurmarkið fyrir heimamenn.

Danir voru mun meira með boltann í leiknum og fengu tvö dauðafæri í fyrri hálfleik. Gunnleifur Gunnleifsson varði í annað skiptið stórkostlega og í hitt skiptið bjargaði Kristján Örn Sigurðsson vel.

Íslendingar áttu ágætis rispur inn á milli og munaði litlu að þeir skoruðu eftir klukkustundar leik. Birkir Már Sævarsson komst þá alveg upp að marki Dana hægra meginn en í stað þess að gefa á dauðafrían Gylfa Sigurðsson tók hann skotið úr þröngu færi sem var varið.

Þegar allt leit út fyrir að jafntefli yrði niðurstaðan skoraði Thomas Kahlenberg sigurmarkið á 91. mínútu, afar aulalegt mark sem var gríðarlega svekkjandi að fá á sig.

Íslenska liðið barðist og barðist og átti ekkert minna en stig skilið. Það var skipulagt varnarlega og átti ágætis rispur fram á við. Reyndar kom það of oft fyrir að sóknarmenn liðsins völdu ranga kosti þegar þeir voru komnir í góða stöðu.

Ísland er því án stiga eftir fyrstu tvo leikina í riðlinum en næst tekur við leikur gegn Portúgal í október.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.