ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Rooney átti stórleik í skugga vændismáls

11:14 › 6. september 2010
Rooney og Colleen. Ýmislegt gruggugt hefur komið upp úr einkalífi knattspyrnuhetjunnar.

Rooney og Colleen. Ýmislegt gruggugt hefur komið upp úr einkalífi knattspyrnuhetjunnar.

Breska slúðurblaðið Daily Mail heldur því fram að Wayne Rooney, framherji Manchester United og enska landsliðsins, hafi ítrekað haldið fram hjá eiginkonu sinni, Coleen Rooney, á meðan hún var ólétt. Segir blaðið að Rooney hafi viðurkennt þetta fyrir Coleen á laugardagskvöldið. Coleen ól hjónunum þeirra fyrsta barn, son að nafni Kai, fyrr á árinu.

Vændiskonan, sem heitir Jennifer Thompson, segist hafa sofið sjö sinnum hjá Rooney á fjögurra mánaða tímabili. Gleðikvöld með Jennifer kostar 1.200 pund, eða rétt tæplega 220 þúsund krónur. Segir Jennifer að hún hafi stundað kynlíf með Rooney á flottustu hótelum Manchester-borgar og saman hafi þau farið á næturklúbba og í spilavíti. Einnig segir hún að Rooney hafi boðið henni á heimili þeirra hjóna í fjarveru Coleen.

Daily Mail kennir þessum vandræðum Rooneys í einkalífinu um slakt gengi hans undanfarna mánuði. Rooney var ekki nema skugginn af sjálfum sér á heimsmeistaramótinu í sumar og hafði hann ekki skorað mark, hvorki með Manchester United né Englandi, þar til um síðustu helgi þegar hann skoraði úr vítaspyrnu gegn West Ham.

Talið var að þessi frétt myndi aftra Rooney frá því að halda til Sviss með enska landsliðinu en Rooney er mættur til Sviss þar sem England leikur sinn annan leik í undankeppni Evrópumótsins. England fór vel af stað og afgreiddi Búlgaríu á heimavelli, 4–0.

Þótti Rooney þar fara á kostum í nýrri stöðu, í holunni undir fremsta manni. Fékk hann meira lof í mörgum blöðum en framherjinn Jermaine Defoe sem skoraði þrennu í leiknum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.