Valur varð á laugardaginn Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í fimmta skipti í röð þegar liðið bar sigurorð af Aftureldingu, 8-1, í Mosfellsbænum. Fyrir umferðina datt engum í hug að Valur yrði Íslandsmeistari þar sem Breiðablik, þeirra helsti keppinautur um titilinn, átti að því virtist auðveldan leik gegn öðru af botnliðum deildarinnar, FH.
Svo fór að Breiðablik vann FH, 3-2, og fékk Freyr Alexandersson, þjálfari Vals, skilaboð um það frá konu sinni. Hann ætlaði ekki að trúa sínum eigin eyrum þegar hann frétti úrslitin.
„Ég hringdi á annan stað til að fá þetta staðfest. Þetta var þá satt og þá var ekki erfitt að peppa stelpurnar upp í leikinn. Klefaræðan var bara gefins,“ segir Freyr en hún var stutt og skorinorð. „Ég sagði bara: Þið eruð búnar að væla í tvö ár um að þið þurfið að taka við titlum á sunnudegi, þannig að drullisti bara út og vinnið þennan leik!“
Nánar er rætt við Frey í DV í dag.





Minningarmyndband um Sigurstein Gíslason
Titlarnir níu engin tilviljun
„Ég hef náð öllum mínum markmiðum“
Hægt að veðja á íslenska æfingaleiki
Guðjón Þórðarson ráðinn þjálfari Grindavíkur