Corey Pavin, fyrirliði Bandaríkjanna, og Colin Montgomerie, fyrirliði Evrópu, með Ryder-bikarinn. Mynd Reuters
Setningarhátíð Ryder-bikarsins í Golfi hefst klukkan 15:00 en klukkan 6:30 í fyrramálið hefst keppnin þar sem Bandaríkin og Evrópa leiða saman hesta sína í sextánda sinn. Í ár er keppt á Celtic Manor-vellinum í Wales. Öll keppnin verður í beinni á Skjá Golfi sem annar ekki eftirspurnum um áskrift og biður sjónarpsstjórinn, Hilmar Björnsson, fólk um að sýna þolinmæði.
„Síminn stoppar ekki. Ég var að tala við áskriftadeildir Símans og Vodafone og það er alveg rosalega mikið að gera. Fólk verður að sýna smá þolinmæði þar sem þetta hefst allt á endanum,“ segir Hilmar sem er þó þakklátur fyrir viðtökurnar.
„Þetta er alveg frábært og auðvitað algjört fagnaðarefni fyrir okkur að fá svona viðtökur,“ segir hann en bendir fólki þó á að vera tímanlega í áskriftarpöntun því Ryder-bikarinn fer snemma af stað í fyrramálið. Fyrstu pör hefja leik klukkan 6:30. Einnig er hægt að tryggja sér áskrift á skjargolf.is.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
