ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Tiger hjálpaði Westwood

11:06 › 29. september 2010
Tiger Woods gaf kollega sínum góð ráð.

Tiger Woods gaf kollega sínum góð ráð. Mynd: Reuters

Bretinn Lee Westwood segir að ráð frá Tiger Woods hafi bjargað honum frá því að missa af Ryder-bikarnum sem hefst á föstudaginn.

Þeir félagarnir voru saman í holli á WCG-mótinu í ágúst þar sem Woods varaði Westwood við að spila með rifinn vöðva í kálfa, hann ætti frekar að taka sér frí.

„Tiger sá að mig verkjaði þegar ég sló. Hann sagði mér að hvíla mig því annars myndi ég verða frá í sex mánuði að minnsta kosti. Það kom fyrir Tiger þegar hann reyndi of mikið á sig á opna bandaríska 2008. Hann veit því alveg hvað hann syngur,“ segir Westwood.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?