Í dag tekur til starfa ný íþróttasjónvarpsstöð á Íslandi. Skjár Golf fer þá í loftið en henni stýrir fyrrverandi yfirmaður Stöðvar 2 Sports, Hilmar Björnsson. Golfarar fá þarna allt beint í æð og Hilmar útilokar ekki að dusta rykið af Skjá Sporti og gera tilboð í Meistaradeildina þegar samningar losna í sumar.
Úlfar og Þorsteinn lýsa
„Við verðum með fyrstu tvo dagana í opinni dagskrá, svo lokum við henni á miðvikudaginn,“ segir Hilmar Björnsson, sjónvarpsstjóri Skjás Golfs, nýrrar íþróttasjónvarpsstöðvar sem fjallar – eins og nafnið gefur til kynna – alfarið um golf. Hilmar var lengi sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 Sports en var sagt þar upp störfum fyrr á árinu. Hann fór þá með þessa hugmynd um golfsjónvarpstöð upp á Skjái Einn þar sem vel var tekið í hana.
Hilmari tókst síðan að hafa golfið af fyrrverandi vinnuveitanda sínum þegar samningar losnuðu. Er Hilmar einnig búinn að fá til sín lýsendur Stöðvar 2 Sports, fyrrverandi Íslandsmeistarana Úlfar Jónsson og Þorstein Hallgrímsson. Svo gæti farið að Hilmar endurveki Skjá Sport og nappi fleiri greinum af sínum fyrrverandi samstarfsfélögum.
Engin símtöl frá 365
Golfið hefur verið ein af aðalíþróttum Stöðvar 2 Sports, á eftir fótboltanum. Samkvæmt heimildum DV voru ekki allir á eitt sáttir á 365 þegar fréttist að Hilmar væri búinn að „ræna“ af þeim golfinu. „Ég fékk engin símtöl. Þetta voru bara samningar sem voru lausir. Ég vissi að þeir myndu losna í sumar og ég náði þessum réttum,“ segir Hilmar en hvernig var að ganga inn á skrifstofu Skjásins vopnaður hugmynd um sjónvarpsstöð sem fjallaði einungis um golf.
„Í rauninni var vel tekið í þetta frá upphafi. Það er náttúrulega algjör sprenging í golfi. Áður en við fórum af stað vorum við samt með rýnihópa til að meta áhuga fólks á svona stöð. Niðurstöðurnar úr því voru mjög jákvæðar og lykillinn að því að við fórum af stað. Golf er alltaf að verða vinsælla og vinsælla og eins sjónvarpstöðvar sem fjalla aðeins um eina íþróttagrein,“ segir Hilmar.
Hefst með Rydernum
Fyrsta mótið sem sýnt verður frá er Ryder-bikarinn þar sem Ameríka og Evrópa leiða saman hesta sína. Mótið hefst á fimmtudaginn og verða allir dagarnir í beinni útsendingu. Áður en PGA-mótaröðin hefst svo aftur í janúar verður Skjár Golf með nokkur mót í beinni sem aldrei áður hafa verið sýnd hér á landi.
„Eftir Ryderinn fer að aukast spennan á Evróputúrnum. Fimmtudaginn eftir Ryderinn hefst Dunhill Links-mótinu og nær öll mótin á Evrópumótaröðinni sem endar á hápunktinum, Dubai World Championship. Einnig sýnum við mót sem ekki hafa verið sýnd áður eins og Grand Slam of Golf og annað mót í Ástralíu, stór mót sem Tiger til dæmis mætir alltaf á. Þá er eitt mót eftir í heimsmótaröðinni sem við sýnum frá,“ segir Hilmar.
Samstarf stöðvarinnar og klúbbanna
Áskriftin að Skjá Golfi kostar 2.890 krónur á mánuði en bindir þú þig í tólf mánuði færðu Golfkort frá stöðinni sem býður upp á ýmsa möguleika. Skjár Golf vinnur til dæmis með klúbbunum utan höfuðborgarsvæðisins. Gerð verða kynningarmyndbönd golfvelli, sem eru að verða tuttugu talsins, meðal annars Kiðjabergið magnaða þar sem Landsmótið fór fram í ár, en á móti fá áskrifendur afslátt þegar þeir spila þar.
„Þetta er rosalega jákvætt fyrir vellina úti á landi sem eiga kannski ekki fjármagn til að kynna sig. Allt í einu fá þeir bara flott kynningarmyndband sem verður á heimasíðunni og sýnt fjörutíu sinnum í sjónvarpinu. Á móti fáum við auðvitað þennan afslátt. Það segir sig sjálft að ef þú nýtir afsláttinn með því að spila nokkra hringi á ári á völlunum okkar, æfir þig í básum, kaupir vörur í Hole in One eða ferð í golfferðina þína með Úrval-Útsýn ertu kominn langt upp í áskrifargjaldið,“ segir Hilmar en frekari upplýsingar um golfkortið má skoða á skjargolf.is.
Skjár Sport gæti lifnað við
Nú þegar er Skjár Golf komin með tæpa þúsund áskrifendur og stöðin ekki enn farin í loftið. „Það er búið að panta hjá okkur áskriftir sem kemur skemmtilega á óvart. Byrjunin lofar allavega góðu,“ segir Hilmar sem er spenntur fyrir mánudeginum en ef þetta gengur upp, gæti Hilmar hugsað sér að bæta við íþróttagreinum inn á Skjá Golf? „Miðað við þau viðbrögð sem við erum að fá núna erum við ekki að fara setja neinar aðrar íþróttir inn á Skjá Golf. Hins vegar erum við opin fyrir því að skoða aðrar íþróttagreinar,“ segir Hilmar.
„Það gæti alveg verið að ég muni banka hér upp á hjá fólki og dusta rykið af Skjá Sporti. Ég held að það væri sniðugra en að hrófla við Skjá Golfi. Útboðið fyrir Meistaradeildina fer í gang næsta sumar og ég tel mig nú þekkja þann markað ágætlega,“ segir Hilmar Björnsson.
Bls. 55 í dagblaði DV 24. sep 2010.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
