David Beckham segir að Wayne Rooney sé í góðum höndum hjá Manchester United eftir að vændisskandallinn kom upp þar sem hann er sakaður um að hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni þegar hún var ólétt með Jennifer Thompson gegn gjaldi.
„Hann er klárlega hjá rétta liðinu og undir stjórn rétta stjórans til að takast á við hvaða aðstæður sem er í einkalífinu,“ segir Beckham um skandalinn í samtali við Sky Sports.
Beckham ætti að þekkja það enda var hann hjá Man Utd til fjölda ára. „Hann nýtur góðs af því að þetta er félag sem tekur þig undir verndarvæng sinn og styður þig í hverju sem er.“
Beckham þekkir líka stöðuna sem Rooney er í núna. Árið 2004 steig barnfóstra hans Rebecca Loos fram á sjónarsviðið og kvaðst hafa átt í ástarsambandi við knattspyrnuhetjuna. Þrátt fyrir að ýmislegt benti til að hann hefði óhreint mjöl í pokahorninu í því máli neitaði Beckham sök og hjónaband hans stóðst áhlaup þess skandals.
Enn á eftir að koma í ljós hvort Rooney verði jafn heppinn.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Martinez verður Liverpool dýr
Loks töpuðu Skagamenn stigum
Muamba gæti spilað fótbolta að nýju
Balotelli fer ekki fet
Puyol og Villa úr myndinni
