ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Woods spilaði hörmulega á Bridgestone

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:53 › 8. ágúst 2010
Tiger Woods.

Tiger Woods.

Tiger Woods stóð sig hörmulega á Bridgestone mótaröðinni í Ohio um helgina. Hann fór síðasta hringinn í dag á 77 höggum eða sjö yfir pari.

Þar með endaði Woods í næst neðsta sæti með 18 yfir pari á mótaröð sem hann hefur unnið sjö sinnum og aldrei áður lent neðar en í fimmta sæti.

Tiger Woods spilaði á samtals 298 höggum eða 39 höggum verra en hann gerði fyrir tíu árum síðan þegar hann sló vallarmetið. Þá á 259 höggum eða 21 undir pari.

Woods sagði frá því eftir slæmt gengi á mótinu að síðustu mánuðir hefðu reynst honum erfiðir. Umfjöllun fjölmiðla um framhjáhald hans og skilnaður við eiginkonuna hefur tekið á hann.

Slæm frammistaða Woods að undanförnu gerir það að verkum að hann er alls ekki öruggur með sæti sitt í Ryder Cup liði Bandaríkjanna en keppnin fer fram í október. ,,Ég mun ekki geta hjálpað liðinu neitt. Það getur enginn sem spilar 18 yfir pari. Ég hef samt trú að ég geti bætt mig og það er langt í október," sagði Woods við fjölmiðla.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?