ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Fyrrum Ólympíumeistari látinn

Birgir Olgeirsson birgir@dv.is
10:07 › 11. ágúst 2010
Antonio Pettigrew, (t.v.) ásamt þeim Michael Johnson, Alvin Harrison og Calvin Harrison.

Antonio Pettigrew, (t.v.) ásamt þeim Michael Johnson, Alvin Harrison og Calvin Harrison.

Fyrrum heimsmeistari í spretthlaupi, Antonio Pettigrew, fannst látinn í baksæti bifreiðar sinnar í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Pettigrew var 42 ára gamall og lætur eftir sig eiginkonu og son. Hann var í sveit Bandaríkjamanna í fjórum sinnum fjögurhundruð metra boðhlaupi á Ólympíuleikunum í Sidney árið 2000.

Sveitin vann þar til gullverðlauna en var svipt þeim eftir að Pettigrew játaði að hafa notað ólögleg lyf við þjálfun. Lögregla segir andlát hans ekki hafa borið að með saknæmum hætti. Bifreið hans var við háskólann í Norður Karólínu, hvar Pettigrew starfaði sem þjálfari.

Pettigrew stóðst öll lyfjapróf á ferli sínum en viðurkenndi við réttarhöld árið 2008 að hann hefði notað stera. Var þá verið að rétta yfir fyrrum þjálfara hans Trevor Graham, sem játaði að hafa logið að starfsmönnum bandarískra yfirvalda sem rannsökuðu ásakanir um ólöglega lyfjanotkun innan íþrótta.

Pettigrew sagði Graham hafa hvatt hann til að nota stera árið 1997. Pettigrew sagðist hafa staðið sig mun betur eftir að hann notaði stera. „Ég hljóp á ótrúlegum tíma þegar ég var að undirbúa mig fyrir mót. Ég náði mér mun betur á milli æfinga.“

Sveitin samanstóð af Alvin Harrison, Antonio Pettigrew, Calvin Harrison og Michael Johnson.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?