Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Íþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir endaði í tíunda sæti í spjótkastkeppni á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Barcelona í kvöld.
Lengsta kast Ásdísar var 54,32 metrar sem er þó langt frá hennar besta kasti. Íslandsmet hennar er 61,37 metrar. Ásdís kastaði spjótinu þrisvar sinnum. Hún gerði ógilt í fyrsta kasti og kastaði 52,32 metra í því þriðja.
Linda Stahl frá Þýskalandi sigraði mótið, en hún kastaði best 66,81 meter.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Chambers gæti snúið aftur á ÓL
Óðinn: Get kastað lengra en þetta
Gull hjá Gatlin - Tvö heimsmet í Tyrklandi
Bolt gæti reynt við fern gullverðlaun í Lundúnum
Íslendingur meistari í Crossfit í Svíþjóð
